Aðgangur á Ísland - Serbía fyrir handhafa A-skírteina
Fyrir landsleikinn gegn Serbíu á fimmtudaginn geta handhafar A-skírteina sýnt þau við merktan inngang á Laugardalsvelli þegar komið er á völlinn. Mikilvægt er að aðeins sé notaður þessi merkti inngangur fyrir A-skírteini. Ekki er nauðsynlegt fyrir þennan leik að sækja miða fyrir leikdag eins og venja er.
Leikurinn við Serba er á fimmtudaginn 21. júní og hefst kl. 21:15.