Miðasala á leikinn gegn Frökkum í gangi
Miðasala á leik Íslands og Frakklands sem fram fer laugardaginn 16. júní kl. 14:00, er hafin. Hægt er að kaupa miða á hér á síðunni og á www.midi.is. Miðinn kostar 1000 krónur en frítt er fyrir 16 ára og yngri. Sætaval er frjálst í vesturstúkunni.
Einnig verður hægt að kaupa miða á leikdag á Laugardalsvellinum og er miðaverðið það sama.
Landsmenn allir eru hvattir til þess að flykkjast á völlinn og styðja stelpurnar í þessu stóra verkefni. Stuðningurinn úr stúkunni getur skipt sköpum í þessum leik.