Byrjunarlið U19 karla gegn Azerum
Guðni Kjartansson, landsliðsþjálfari U19 karla, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt er leikur gegn Azerum í dag. Leikurinn er í milliriðli fyrir EM og hefst kl. 17:00 í Noregi. Þetta er þriðji og síðasti leikur Íslands í riðlinum en áður höfðu strákarnir tapað yfir Spánverjum 2-3 og Norðmönnum, 3-4.
Byrjunarliðið (4-5-1):
Markvörður: Atli Jónasson
Hægri bakvörður: Almarr Ormarsson
Vinstri bakvörður: Jósef Jósefsson
Miðverðir: Eggert Gunnþór Jónsson og Skúli Jón Friðgeirsson
Hægri kantur: Arnór Smárason
Vinstri kantur: Guðmundur Reynir Gunnarsson
Tengiliðir: Bjarni Þór Viðarsson, fyrirliði, Aron Einar Gunnarsson og Birkir Bjarnason
Framherji: Rúrik Gíslason