Hópurinn fyrir leikinn gegn Grikkjum tilkynntur
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, tilkynnti í dag landsliðshóp sinn sem mætir Grikkjum ytra 31. maí næstkomandi. Þetta er fyrsti leikur liðsins í undankeppni fyrir EM 2009.
Þóra Helgadóttir gefur ekki kost á sér í þennan leik vegna vinnu sinnar en systir hennar, Ásthildur Helgadóttir, kemur að nýju inn í hópinn eftir meiðsli.