Vorfundur KÞÍ á Akureyri
Knattspyrnuþjálfarafélag Íslands heldur vorfund á Akureyri, laugardaginn 28. apríl næstkomandi. Fundurinn verður haldinn í félagsheimili Þórs, Hamri og er opinn öllum þeim er áhuga hafa á knatspyrnu og knatspyrnuþjálfun.
Dagskrá:
1.Sigurður Þórir Þorsteinsson formaður KÞÍ setur vorfundinn.
2.Viðar Sigurjónsson sviðsstjóri fræðslusviðs ÍSÍ talar um starfsemi ÍSÍ á Norðurlandi.
3.Að fyrirbyggja meiðsli (Forvarnir og mælingar) Einar Einarsson sjúkraþjálfari MS í heilbrigðistækni.
Léttur hádegisverður (Súpa og brauð)
4.Ólafur Kristjánsson þjálfari meistaraflokks Breiðabliks. - Þjálfun í Danmörku og Íslandi. Atvinnumennska – Áhugamennska.
5.Sigurður Þórir Þorsteinsson slítur fundi.
Þátttökugjald kr.1.500.
Þátttaka er öllum opin sem hafa áhuga knattspyrnu og knattspyrnuþjálfun.
Þátttökutilkynningar berist til Tryggva Gunnarssonar símar 462-7921 / 660-3168 fyrir 26.apríl.
Einnig er hægt að tilkynna þáttöku á netfang kthi@isl.is