Ólöglegur leikmaður með Keflavík gegn Fjölni
Í samræmi við lið 10.2 í reglugerð um Deildarbikarkeppni hefur skrifstofa KSÍ staðfest að Guðmundur Steinarsson lék ólöglegur með liði Keflavíkur gegn Fjölni í Lengjubikar karla miðvikudaginn 4. apríl síðastliðinn.
Leikmaðurinn hefur hlotið þrjár áminningar og átti því að taka út leikbann í ofangreindum leik.
Í reglugerðum KSÍ um deildarbikarkeppni karla og kvenna, grein 8.2 segir:
Ef leikmaður hefur verið áminntur þrisvar sinnum í keppninni (3 gul spjöld), skal hann fara sjálfkrafa í bann í næsta leik. Ef leikmaður hefur verið áminntur tvisvar sinnum til viðbótar (5 gul spjöld), skal hann fara sjálfkrafa í bann í næstu tveimur leikjum. Ef leikmaður hefur verið áminntur af dómara einu sinni enn í keppninni (6 gul spjöld), skal hann fara sjálfkrafa í bann þar til aganefnd hefur fjallað um mál hans. Sjálfkrafa leikbönn verða ekki tilkynnt með skeyti eða faxi.
Úrslitum leiksins hefur því verið breytt og þau skráð 0-3. Þá verður félagið sektað samkvæmt grein 4 í reglugerð KSÍ um knattspyrnumót.