Ólöglegur leikmaður með Dalvík/Reyni gegn Magna
Í samræmi við lið 10.2 í reglugerð um Deildarbikarkeppni hefur skrifstofa KSÍ staðfest að Jón Örvar Eiríksson lék ólöglegur með Dalvík/Reyni gegn Magna í Lengjubikar karla sunnudaginn 1. apríl síðastliðinn.
Úrslitum leiksins hefur því verið breytt í 0-3, Magna í vil.