Fyrsti leikur í riðli Íslands leikinn á morgun
Á morgun fer fram fyrsti leikur í riðli Íslands í undankeppni fyrir EM kvenna í Finnlandi 2009. Taka þá Frakkar á móti Grikkjum en Íslendingar leika sinn fyrsta leik gegn Grikkjum á útivelli 31. maí nk. Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, verður á meðal áhorfenda á leiknum.
Fyrsti heimaleikur íslenska liðsins verður síðan gegn Frökkum en sá leikur fer fram laugardaginn 16. júní.