Landsliðið æfði í hellirigningu í morgun
Strákarnir í landsliðinu voru snemma á fótum í morgun og æfðu kl. 11:00 að staðartíma eða kl. 9:00 að íslenskum tíma í morgun. Það hefur rignt hressilega á sólareyjunni Mallorca í dag og ljóst að völlurinn verður vel vökvaður fyrir leikinn.
Leikurinn hefst kl. 20:00 að íslenskum tíma og er hún þá 22:00 að staðartíma. Létt er yfir mannskapnum og allir klárir í leikinn í kvöld.