Ótrúlegur fyrri hálfleikur hjá strákunum
Fyrri hálfleikur Íslands og Rússlands í milliriðli fyrir EM hefur verið hreint með ólíkindum. Íslendingar leiða í hálfleik með fimm mörkum gegn engu gegn núverandi Evrópumeisturum í þessum aldursflokki. Kolbeinn Sigþórsson hefur skorað fjögur mörk.
Í hinum leik riðilsins leiða Portúgalir leikinn gegn Norður Írum með einu marki gegn engu. Enn er heill seinni hálfleikur eftir en eins og staðan er núna eru strákarnir í efsta sæti riðilsins. Efsta þjóðin tryggir sér sæti í úrslitakeppni EM 2007 sem fram fer í Belgíu.
Hægt er að smella hér að neðan á leikskýrsluna til þess að fylgjast með uppfærðri stöðu.