U17 karla leikur við Portúgal í dag
Í dag kl. 15:00 leikur U17 karla sinn annan leik í millirðili fyrir EM en leikið er í Portúgal. Mótherjarnir eru að þessu sinni heimamenn í Portúgal. Fyrsti leikur Íslendinga í riðlinum var gegn Norður Írum og lauk sá leik með jafntefli, 2-2. Í hinum leik riðilsins mættust Portúgal og Rússar og lauk honum með markalausu jafntefli.
Byrjunarliðið (4-5-1)
Markvörður: Trausti Sigurbjörnsson
Hægri bakvörður: Jóhann Laxdal
Vinstri bakvörður: Kristinn Jónsson
Miðverðir: Eggert Rafn Einarsson og Hólmar Örn Eyjólfsson
Tengiliðir: Frans Elvarsson, Ragnar Þór Gunnarsson og Björn Jónsson
Hægri kantur: Aaron Palomares
Vinstri kantur: Kolbeinn Sigþórsson
Framherji: Viktor Unnar Illugason