Tvær breytingar á landsliðshópnum
Eyjólfur Sverrisson hefur gert tvær breytingar á landsliðshóp sínum er mætir Spánverjum 28. mars næstkomandi. Þeir Hólmar Örn Rúnarsson Silkeborg og Indriði Sigurðsson, Lyn, koma inn í hópinn.
Þeir koma í stað Hermanns Hreiðarssonar og Jóhannesar Karls Guðjónssonar. Hermann er meiddur en Jóhannes Karl og kona hans eiga von á barni á allra næstu dögum.
Hólmar hefur ekki leikið A-landsleik og er því þriðji nýliðinn í hópnum fyrir þennan leik sem leikinn er á Mallorca. Leikurinn hefst kl. 20:00 að íslenskum tíma.