Jafntefli gegn Portúgal hjá U17
Strákarnir í U17 gerðu sitt annað jafntefli í dag í milliriðli fyrir EM 2007. Leikið var við gestgjafana í Portúgal og lauk leiknum með markalausu jafntefli. Síðasti leikur Íslands er við Rússa á laugardaginn.
Í hinum leik riðilsins sigruðu Rússar, Norður Íra, með þremur mörkum gegn einu. Rússar eru því í efsta sæti með fjögur stig en Ísland og Portúgal eru með 2 stig og geta bæði smellt sér í efsta sætið.