Ný lög KSÍ hafa tekið gildi
Ný lög KSÍ hafa nú tekið gildi en lögin voru samþykkt á ársþingi KSÍ sem haldið var 10. febrúar síðastliðinn. Lögin voru háð samþykki framkvæmdastjórnar ÍSÍ sem hefur nú staðfest lögin.
Farið var í umfangsmikla vinnu við endurskoðun laga KSÍ með hliðsjón af kröfum sem bæði UEFA og FIFA settu fram. Vinnu þessari lauk skömmu fyrir ársþing KSÍ og voru lögin samþyktt þar.