Strákarnir hefja leik í dag
Íslenska U17 karlalandsliðið hefur leik í dag í milliriðli fyrir EM og er leikið í Portúgal. Norður Írar eru fyrsti mótherjinn og hefst leikur þjóðanna kl. 15:00. Hinar þjóðirnar eru svo Rússar og heimamenn í Portúgal.
Byrjunarliðið: (4-5-1)
Markvörður: Trausti Sigurbjörnsson
Hægri bakvörður: Jóhann Laxdal
Vinstri bakvörður: Kristinn Jónsson
Miðverðir: Eggert Rafn Einarsson og Hólmar Örn Eyjólfsson
Tengiliðir: Frans Elvarsson, Ragnar Þór Gunnarsson og Björn Jónsson
Hægri kantur: Kristinn Steindórsson
Vinstri kantur: Kolbeinn Sigþórsson
Framherji: Viktor Unnar Illugason