Landsliðshópur Íslendinga tilkynntur í dag
Í dag kl. 14:00 mun Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari, tilkynna landsliðshóp sinn er mætir Spánverjum á Mallorca 28. mars næstkomandi. Leikurinn er í F riðli í undankeppni fyrir EM 2008. Þjóðirnar hafa báðar þrjú stig, Ísland eftir fjóra leiki en Spánverjar eftir þrjá.
Spánverjar hafa þegar tilkynnt landsliðshóp sinn en þeir taka einnig á móti Dönum, laugardaginn 24. mars nk. Í spænska hópnum er valinn maður í hverju rúmi og ljóst að róðurinn verður erfiður hjá íslenska liðinu.