U19 kvenna leikur gegn Danmörku í dag
Síðasti leikur U19 kvenna á æfingamóti landsliða á La Manga verður leikinn í dag og eru andstæðingarnir Danir. Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið en leikurinn hefst kl. 13:00.
Byrjunarliðið: (4-5-1)
Markvörður: Ása Aðalsteinsdóttir
Vinstri bakvörður: Kristrún Kristjánsdóttir
Hægri bakvörður: Linda Rós Þorláksdóttir
Miðverðir: Agnes Þóra Árnadóttir og Guðrún Erla Hilmarsdóttir
Tengiliðir: Hlín Gunnlaugsdóttir og Björg Magnea Ólafs
Sóknartengliður: Sara Björk Gunnarsdóttir
Vinstri kantur: Laufey Björnsdóttir
Hægri kantur: Sandra Sif Magnúsdóttir
Framherji: Rakel Hönnudóttir
Íslenska liðið hefur leikið tvo leiki í mótinu til þessa, töpuðu fyrir Ítalíu 1-2 og gerðu jafntefli við Englendinga, 1-1.