Styrkleikalistar karla og kvenna frá FIFA
Nýir styrkleikalistar FIFA, bæði í karla- og kvennaflokki, hafa verið birtir. Karlalandsliðið fer upp um níu sæti og situr í sæti 86. Konurnar eru hinsvegar áfram í sæti númer 21.
Íslenska karlalandsliðið hoppar upp um níu sæti en konurnar sitja í sama sætinu þrátt fyrir góðan árangur á Algarve Cup.
Nýjar þjóðir tylla sér á toppinn á báðum listum, Argentína í karlaflokki en Bandaríkin í kvennaflokki.