Jafntefli við Englendinga hjá U19 kvenna
U19 kvennalandslið Íslands gerði í dag jafntefli við Englendinga á æfingamóti landsliða á La Manga. Lauk leiknum 1-1 eftir að Laufey Björnsdóttir hafði komið Íslendingum yfir á 51. mínútu. Leikið verður við Danmörku á föstudaginn og er það síðasti leikur liðsins á mótinu.
Hér að neða er stutt lýsing sem birt var á síðunni á meðan á leik stóð.
England - Ísland
Íslenska liðið bjóst við erfiðum leik enda enska liðið mjög sterkt. Þessar þjóðir léku 2 vináttulandsleiki á Íslandi í nóvember síðastliðnum. Englendingar báru sigur úr býtum í báðum leikjum, 3-0 og 4-0.
Enska liðið sótti töluvert meira í fyrri hálfleik en íslenska liðið barðist af grimmd og spilaði varnarleikinn virkilega vel. Þegar dómari leiksins flautaði til hálfleiks hafði ekkert mark verið skorað, 0-0.
Mark, 0-1 fyrir Ísland
Íslenskar knattspyrnukonur fara hamförum í dag. Laufey Björnsdóttir skoraði fyrir Ísland með þrumfleyg frá vítateigslínu, stórglæsilegt mark. Markið kom á 51. mínútu.
Englendingar jafna leikinn á 60. mínútu með skallamarki, staðan 1-1.
Íslendingar hafa gert tvær breytingar á liði sínu. Rúna Sif Stefánsdóttir og Anna Garðarsdóttir hafa komið inn á í stað Söndru Sifjar Magnúsdóttur og Söru Bjarkar Gunnarsdóttur.
Leiknum lokið með jafntefli, 1-1. Frábær úrslit hjá stelpunum sem eru greinilega í mikilli sókn.