U19 kvenna hefur leik í dag
Íslenska U19 kvennalandsliðið tekur þátt á æfingamóti á La Manga sem hefst í dag. Fyrsti leikur íslenska liðsins er gegn Ítalíu og hefur Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfari, tilkynnt byrjunarlið sitt fyrir leikinn.
Byrjunarliðið: (4-5-1):
Markvörður: Petra Lind Sigurðardóttir
Vinstri bakvörður: Kristrún Kristjánsdóttir
Hægri bakvörður: Hlín Gunnlaugsdóttir
Miðverðir: Guðrún Erla Hilmarsdóttir og Anna Garðarsdóttir
Tengiliðir: Laufey Björnsdóttir, Linda Rós Þorláksdóttir og Sara Björk Gunnarsdóttir
Vinstri kantur: Anna Þórunn Guðmundsdóttir
Hægri kantur: Sandra Sif Magnúsdóttir
Framherji: Rakel Hönnudóttir
Leikurinn hefst kl. 13:00 að íslenskum tíma og munum við birta tölur hér á heimasíðunni um leið og þær berast.