Naumt tap gegn Ítölum hjá U19 kvenna
Æfingamót U19 kvenna á La Manga hófst í dag og léku Íslendingar gegn Ítölum. Leikurinn tapaðist með einu marki gegn tveimur eftir að Ísland hafði náð forystunni. Næsti leikur Íslands er á miðvikudaginn gegn Englandi.
Það var Sandra Sif Magnúsdóttir sem kom íslenska liðinu yfir á 43. mínútu snotru marki eftir glæsilega sókn íslenska liðsins. Þannig var staðan í seinni hálfleik en ítalska liðið jafnaði leikinn á 62. mínútu. Það var svo á 78. mínútu að sigurmark ítalska liðsins kom. Það við sat og tap staðreynd þrátt fyrir prýðilegan leik íslenska liðsins.