Byrjunarlið Íslands gegn Írlandi
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Írlandi í öðrum leik liðsins á Algarve Cup. Sigurður gerir sjö breytingar á byrjunarliðinu frá því í leiknum gegn Ítalíu. Anna Björg Björnsdóttir er í byrjunarliðinu í sínum fyrsta landsleik.
Sigurður breytir ennfremur um leikaðferð mun leika hina sígildu, 4-4-2.
Byrjunarliðið: (4-4-2)
Markvörður: Guðbjörg Gunnarsdóttir
Hægri bakvörður: Erna B. Sigurðardóttir
Vinstri bakvörður: Guðný Óðinsdóttir
Miðverðir: Katrín Jónsdóttir, fyrirliði og Guðrún Sóley Gunnarsdóttir
Tengiliðir: Erla Steina Arnardóttir og Dóra Stefánsdóttir
Hægri kantur: Dóra María Lárusdóttir
Vinstri kantur: Rakel Logadóttir
Framherjar: Margrét Lára Viðarsdóttir og Anna Björg Björnsdóttir
Leikurinn hefst kl. 18:00 að íslenskum tíma.