Byrjunarliðið gegn Ítölum tilkynnt
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt sitt fyrsta byrjunarlið sem mætir Ítölum á morgun á Algarve Cup. Þóra B. Helgadóttir mun leika sinn fimmtugusta landsleik og þær Sif Atladóttir og Fjóla Dröfn Friðriksdóttir leika sinn fyrsta landsleik.
Sigurður Ragnar stillir upp í leikaðferðina 4-3-3 en leikurinn hefst kl. 18:00 að íslenskum tíma.
Byrjunarliðið: (4-3-3)
Markvörður: Þóra Björg Helgadóttir
Hægri bakvörður: Sif Atladóttir
Vinstri bakvörður: Ásta Árnadóttir
Miðverðir: Guðrún Sóley Gunnarsdóttir og Katrín Jónsdóttir, fyrirliði
Tengiliðir: Dóra Stefánsdóttir, Edda Garðarsdóttir og Katrín Ómarsdóttir
Hægri kantur: Fjóla Dröfn Friðriksdóttir
Vinstri kantur: Hólmfríður Magnúsdóttir
Framherji: Margrét Lára Viðarsdóttir