Miðasala hafin á úrslitakeppni EM 2008
Í dag, 1. mars, hófst formlega miðasala á úrslitakeppni EM sem fram fer í Sviss og Austurríki í júní 2008. Hægt er að sækja um miða, í þessari fyrstu atrennu miðasölunnar, til 31. mars.
Gert er ráð fyrir að um 350.000 miðar verði seldir í þessum fyrsta hluta miðasölunnar, í gegnum heimasíðuna www.euro2008.com en dregið verður úr umsóknum um þessa miða.