Hópurinn sem fer til Algarve tilkynntur
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt hópinn sem tekur þátt á Algarve Cup 2007. Sigurður Ragnar velur 20 leikmenn í þetta verkefni en hópurinn heldur utan 5. mars og leikur fjóra leiki.
Ísland mun leika gegn Ítalíu, Írlandi og Portúgal sem og leikið verður um sæti á mótinu.
Sjónvarpsstöðin Eurosport mun sýna fjölmarga leiki í beinni útsendingu frá þessu sterka móti og þar á meðal leik Portúgals og Íslands sem leikinn er mánudaginn 12. mars kl. 15:30.