U19 kvenna leikur í Portúgal
Dregið var í dag í riðlakeppni fyrir EM 2008 hjá U19 kvenna í dag. Ísland lenti í 1. riðli með Portúgal, Grikklandi og Rúmeníu og verður riðillinn leikinn í Portúgal 27. september til 2. október.
Tvær efstu þjóðir hvers riðils komast í aðra umferð en úrslitakeppnin verður leikin í Frakklandi 2008.