U17 kvenna leikur í Slóveníu
Í dag var dregið í riðlakeppni fyrir EM hjá U17 kvenna en þetta er í fyrsta skiptið sem keppnin er haldin í þessum aldursflokki. Ísland er í fjórða riðli og leika gegn Úkraínu, Slóveniu og Lettlandi.
Riðillinn er leikinn í Slóveníu og verður líklega leikinn um miðjan september. Siguvegari hvers riðils kemst áfram ásamt þeim sex þjóðum sem verða með bestan árangur í öðru sæti.