Flottar í fótbolta
Málþingið er hluti stefnumótunarvinnu fyrir meistaraflokk og 2. flokk kvenna í knattspyrnu hjá FH. Það er haldið af unglingaráði og meistaraflokksráði kvenna. Markmið málþingsins er að ræða málefni kvennaknattspyrnunnar; mögulegar ástæður brottfalls unglingsstúlkna, leiðir til úrlausna, tækifæri stúlkna sem stunda knattspyrnu sem og verkefni og lausnir er varða aðstöðu, aðbúnað, stuðning o.fl.
Meistarflokksráð kvenna hefur það að leiðarljósi að efla meistaraflokk FH í kvennaknattspyrnu. Stefnt er að því að félagið blandi sé í toppbaráttu úrvalsdeildarinnar á næstu árum og verði eitt af sterkustu vígjum kvennaknattspyrnu hér á landi. Til þess að ná því markmiði þarf að auka þátttöku hafnfirskra stúlkna í knattspyrnu efla starf 2.fl- og meistaraflokks kvenna í FH sem og félagslegan stuðning við stelpurnar.
Drög að dagskrá:
10:00- 10:10 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra setur málþingið
10:10 – 10:25 Brottfall stúlkna úr knattspyrnu, ástæður og leiðir til úrlausnar. Margrét Gauja Magnúsdóttir, bæjarfulltrúi
10:25 – 10:45 Þróun kvennaknattspyrnu á Íslandi og tækifæri stúlkna í dag. Klara Bjartmarz skrifstofustjóri KSÍ
10:45 – 11:00 Eru spennandi möguleikar í útlöndum? Reynsla stúlku sem spilað hefur erlendis. Guðrún Sóley Gunnarsdóttir, knattspyrnukona
11:00 – 11:30 Kaffihlé
11:30 - 1145 Dæmi um starf kvennadeildar íslensks liðs, leiðir,tækifæri og hættur. Jóhannes Sveinbjörnsson, formaður meistaraflokksráðs kvenna hjá Breiðablik
11:45 – 12:00 Hvað þarf til að ná árangri með liðsheild í íþróttum?
Auðun Helgason, fyrirliði Íslandsmeistara FH í knattspyrnu
12:00 – 12:20 Stefnumótun meistaraflokksráðs kvennadeildar FH. Við ætlum að blanda okkur í toppbaráttuna á næstu árum! Helga Friðriksdóttir, formaður meistaraflokksráðs kvenna hjá FH
12:20 – 13:00 Fyrirspurnir og umræður
13:00 Ráðstefnuslit
Fundarstjóri: Gunnar Svavarsson, forseti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar
Málþingið er öllum opið og þeir sem láta sig málefni kvennaknattspyrnu varða eru hvattir til að mæta.
|
Nánari upplýsingar veita:
Helga Friðriksdóttir s. 864-8204
Katrín Alfreðsdóttir s. 899-6603
Margrét Jóhannsdóttir s. 847-5460