Riðlarnir klárir fyrir EM U21 karla
Í dag var dregið í riðla fyrir riðlakeppni EM U21 karla 2007-2009. Úrslitakeppnin fer fram í Svíþjóð og af því tilefni var dregið í Stokkhólmi. Ísland var í þriðja styrkleikaflokki og lenti í riðli með Belgíu, Slóvakíu, Austurríki og Kýpur.
Alls eru riðlarnir tíu talsins og komast sigurvegarar hvers riðils áfram ásamt þeim fjórum þjóðum sem hafa bestan árangur í öðru sæti riðlanna. Leika þessar fjórtán þjóðir aukaleiki um sjö sæti í úrslitakeppninni. Gestgjafar úrslitakeppninnar, Svíar, skipa svo áttunda sætið.