Fotbolti.net hlýtur viðurkenningu
Eggert Magnússon, fráfarandi formaður KSÍ, afhenti forsvarsmönnum netmiðilsins fotbolta.net viðurkenningu fyrir þeirra framlag til knattspyrnunar á Íslandi. Vefsíðan hefur fjallað myndarlega um íslenska knattspyrnu á undanförnum árum.
Það voru þeir Hafliði Breiðfjörð og Magnús Einarsson sem tóku við viðurkenningunni fyrir hönd www.fotbolti.net.