Fjölnir hlaut kvennabikarinn 2006
Fjölnir hlaut kvennabikarinn fyrir árið 2006 og var hann afhentur á ársþingi KSÍ. Ásgeir Heimir Guðmundsson formaður knattspyrnudeildar Fjölnis tók við bikarnum fyrir hönd félagsins úr hendi formanns KSÍ.
UMSK gaf KSÍ kvennabikarinn í tilefni af 45 ára afmæli sambandsins árið 1992. Kvennabikarinn er veittur ár hvert fyrir gott starf í kvennaknattspyrnu.