Ársþing KSÍ haldið á laugardag
Laugardaginn 10. febrúar, kl 10:00, verður 61. ársþing KSÍ sett á Hótel Loftleiðum. Fylgst verður með framvindu þingsins, afgreiðslu tillagna, kosningum og annarra mála, hér á heimasíðunni.
Notendum ksi.is er bent á að ýmsar upplýsingar tengdar þinginu er að finna hér á síðunni, undir Um KSÍ hér uppi til hægri og velja svo Ársþing vinstra megin á síðunni.
Þá verður settur upp tengill á forsíðu heimasíðunnar sem smella má á til að fylgjast með afgreiðslu tillagna kosninga og annarra mála.