Ágúst Ingi Jónsson gefur ekki kost á sér til stjórnarkjörs
Ágúst Ingi Jónsson hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til endurkjörs við stjórnarkjör á ársþingi KSÍ þann 10 febrúar nk. Ágúst Ingi hefur verið í stjórn KSÍ í rúmlega 12 ár.
Ágúst var kjörinn í stjórn KSÍ árið 1992 en dró sig í hlé tveimur árum síðar. Hann var svo kjörinn í stjórn að nýju árið 1996.