Vináttulandsleikur við Englendinga
KSÍ hefur komist að samkomulagi við enska knattspyrnusambandið um landsleik á milli kvennalandsliða þjóðanna. Leikið verður ytra þann 17. maí næstkomandi. Ekki er búið að staðfesta á hvað velli verður leikið en það verður tilkynnt í febrúar.
Leikurinn er liður í undirbúningi liðsins fyrir riðlakeppni fyrir EM 2009 en fyrsti leikur Íslands í þeim riðli er ytra gegn Grikklandi, 31. maí. Í kjölfarið fylgja svo tveir heimaleikir þar sem Serbar og Frakkar koma í heimsókn.
Í mars mun liðið taka þátt í hinu sterka Algarve Cup en fyrsti leikur í því móti fer fram 7. mars.