Afreksstyrkur til kvennalandsliðsins
Stjórn KSÍ ákvað á fundi sínum 13. janúar sl. að jafna dagpeningagreiðslur til karla- og kvennalandsliðsins. Jafnframt ákvað stjórnin að kvennalandsliðið fái 10 m. kr. afreksstyrk komist liðið í úrslitakeppni EM 2009 sem skiptist milli þeirra leikmanna sem taka þátt í riðlakeppninni. Fyrsti leikur kvennalandsliðsins í riðlakeppni verður gegn Grikklandi ytra 31. maí nk.