• þri. 16. jan. 2007
  • Leyfiskerfi

Öll félögin í Landsbankadeild skiluðu innan tímamarka

Landsbankadeildin
lbd_2004_hvitt

Öll félögin í Landsbankadeild karla skiluðu leyfisumsókn ásamt fylgigögnum innan settra tímamarka, en skilafresturinn rann út mánudaginn 15. janúar.  Skiladagur félaga í 1. deild er miðvikudagurinn 17. janúar.

Leyfisstjóri metur síðan gögnin, gerir athugasemdir þar sem við á og leitar eftir frekari eða endurbættum gögnum frá viðkomandi félögum.

Félögin skila öllum gögnum, öðrum en fjárhagslegum, í janúar, en fjarhagslegur gögnum á að skila eigi síðar en 20. febrúar.