• mán. 15. jan. 2007
  • Leyfiskerfi

Skiladagur gagna er runninn upp

Landsbankadeildin
lbd_2004_hvitt_barabolti

Skiladagur leyfisumsóknar og fylgigagna, annarra en fjárhagslegra, er 15. janúar og er sá dagur runninn upp.  Þegar hafa fjögur félög í Landsbankadeild karla skilað gögnum - Keflavík, Fylkir, HK og Valur.  

Skilafrestur fyrir félög í 1. deild karla var framlengdur til miðvikudagsins 17. janúar og hefur ekkert félag í þeirri deild skilað gögnum, enn sem komið er.

Í 2. kafla leyfishandbókarinnar er skýrt kveðið á um að beita skuli viðurlögum ef tímamörk eru ekki uppfyllt.

2.2.3.2        Tímamörk ekki uppfyllt

Ef leyfisumsækjandi uppfyllir ekki sett tímamörk um framlagningu leyfisgagna skal hann sæta viðurlögum.  Við ákvörðun þeirra skal taka mið af alvarleika brotsins.  Eftirfarandi viðurlögum er hægt að beita:

1)   Viðvörun og sekt; við fyrsta brot skal beita dagsektum að upphæð kr 1.500 fyrir hvern dag sem líður þangað til viðeigandi gögnum hefur verið skilað, að hámarki kr 30.000.

2)   Áminning og sekt; við ítrekað brot skal skal beita dagsektum að upphæð kr 3.000 fyrir hvern dag sem líður þangað til viðeigandi gögnum hefur verið skilað, að hámarki kr 60.000.

3)   Stigatap; við alvarlegt og ítrekað brot er jafnframt heimilt að draga allt að 3 stig frá félaginu í deildarkeppninni.

Ítrekunarkvöð fellur niður ef tímamörk hafa verið uppfyllt í 3 ár samfleytt.