Nýliðar HK í fjórða sæti
Nýliðar HK urðu í dag fjórða félagið til að skila leyfisumsókn ásamt fylgigögnum fyrir Landsbankadeildina 2007. Þá eiga sex félög eftir að skila, en enn hefur ekkert af félögunum tólf í 1. deild skilað sinni umsókn ásamt fylgigögnum.
Landsbankadeildarfélögin hafa reyndar frest til mánudagsins 15. janúar, en félög í 1. deild fengu tveggja daga viðbótarfrest, til miðvikudagsins 17. janúar.
Hvaða félag tekur forystuna í 1. deild? Fylgist með hér á ksi.is .....