• fim. 11. jan. 2007
  • Leyfiskerfi

Skilafrestur 1. deildar framlengdur um tvo daga

Úr leik KA og Þróttar
ka-throttur-2006

Leyfisstjórn hefur ákveðið að framlengja skilafrest á leyfisumsóknum félaga í 1. deild karla um tvo daga.  Félögin 12 verða nú að skila umsókn um þátttökuleyfi, ásamt fylgigögnum öðrum en fjárhagslegum, eigi síðar en miðvikudaginn 17. janúar.

Lokaskiladagur félaga í Landsbankadeild karla er eftir sem áður mánudagurinn 15. janúar.  Fjárhagslegum leyfisgögnum á síðan að skila eigi síðar en 20. febrúar og á það við bæði um félög í Landsbankadeild og 1. deild.