Fylkismenn búnir að skila
Fylkismenn hafa skilað leyfisumsókn sinni fyrir komandi keppnistímabil og hafa nú tvö félög af 10 í Landsbankadeild skilað gögnum, öðrum en fjárhagslegum, en lokaskiladagur er 15. janúar. Fjárhagslegum gögnum á síðan að skila eigi síðar en 20. febrúar.