Leikir kvennalandsliðsins á Algarve Cup 2007
Íslenska kvennalandsliðið tekur þátt í hinu geysisterka Algarve Cup 2007 og fer mótið fram í marsmánuði. Ísland er í C-riðli með Ítalíu, Portúgal og Írlandi og hafa leikdagar verið staðfestir i riðlinum.
Sterkustu þjóðir heims leika í A og B riðli þessa móts en tvo efstu lið C-riðils leika við liðin í fjórða sæti úr A og B riðlinum. Þýskaland sigraði á Algarve Cup í fyrra en þær þýsku sigruðu stöllur sínar frá Bandaríkjunum, 4-3, eftir vítaspyrnukeppni í úrslitaleiknum.