Æfingahópur valinn hjá A landsliði kvenna
Sigurður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfari hefur tilkynnt æfingahóp fyrir æfingar A landsliðs kvenna sem fram fara helgina 6.-7. janúar. Æfingarnar eru hluti að undirbúningi liðsins fyrir Algarve Cup í mars, en einnig er fyrirhugað er að liðið komi saman tvisvar í febrúar.
Að þessu sinni velur Sigurður Ragnar 40 leikmenn til æfinga og munu þeir æfa tvisvar sinnum fyrstu helgina á nýju ári.