U19 kvenna til Spánar í mars
U19 landslið kvenna mun taka þátt á boðsmóti er fram fer á La Manga á Spáni. Liðið mun halda utan 10. mars og leika þrjá leiki, 12., 14. og 16. mars. Er þetta mót mikilvægur liður í undirbúningi íslenska liðsins fyrir úrslitakeppni EM í júlí 2007.
Ekki er alveg ljóst hverjir mótherjar íslenska liðsins verða á þessu móti en ljóst er að leikir þessir munu nýtast vel í undirbúningi íslenska liðsins.