Leikið við England í Egilshöll í kvöld
Í kvöld kl. 20:00 fer fram seinni vináttulandsleikur Íslands og Englands, hjá U19 kvenna, en leikið er í Egilshöll. Þjóðirnar léku í Akraneshöllinni sl. þriðjudag og fóru þá ensku stúlkurnar með sigur af hólmi. Ókeypis aðgangur er á leikinn.
Dómari leiksins verður Leiknir Ágústsson og honum til aðstoðar þeir Oddbergur Eiríksson og Þorvaldur Árnason. Fjórði dómari leiksins er Eyjólfur Finnsson.
Áhorfendur eru hvattir til þess að koma í Egilshöllina í kvöld og hvetja íslensku stelpurnar til dáða.