Úrtaksæfingar hjá U17 kvenna á Akureyri
Kristrún Lilja Daðadóttir, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur valið hóp til úrtaksæfinga er fram fara á Akureyri sunnudaginn 26. nóvember. Kristrún hefur valið 27 leikmenn frá félögum af Norðurlandi.
Í janúar munu svo fara fram úrtaksæfingar hjá U17 kvenna á Austurlandi.