Úrtaksæfingar U17 kvenna á Norðurlandi
Sunnudaginn 26. nóvember munu verða haldnar úrtaksæfingar hjá U17 kvenna í Boganum á Akureyri. Tvær æfingar verða þennan dag undir stjórn Kristrúnar Lilju Daðadóttur landsliðsþjálfara.
Félög á Norðurlandi eru beðin um að senda ábendingar um efnilega leikmenn (fæddar 1990 og 1991) á klara@ksi.is (nafn, fæðingarár og leikstaða).
Í janúar mun Kristrún svo halda úrtaksæfingar á Austurlandi, nánar tiltekið í Fjarðabyggðarhöllinni á Reyðarfirði.