U19 kvenna æfa um helgina
Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hefur valið hóp sem æfir tvisvar um komandi helgi. Liðið mun svo mæta enskum stöllum sínum í tveimur vináttulandsleikjum, 21. og 23. nóvember næstkomandi.
Leikurinn sem fram fer 21. nóvember fer fram í hinni nýju Akraneshöll og er það í fyrsta skipti sem að landsleikur fer þar fram. Leikurinn sem leikinn er 23. nóvember, verður í Egilshöllinni.