• þri. 14. nóv. 2006
  • Leyfiskerfi

Gæðamat framkvæmt á leyfiskerfi KSÍ

SGS - Qualicert
Qualicert_en_c

Um miðjan september fór fram víðtækt gæðamat á skipulagi leyfiskerfis KSÍ og því starfi sem unnið er við rekstur þess.  Matið er framkvæmt árlega af SGS, sem er alþjóðlegt vottunarfyrirtæki og sér um gæðamat á leyfiskerfum fyrir UEFA í aðildarlöndum sambandsins.

Skoðunin tókst vel í alla staði og var gæðavottun frá SGS staðfest í byrjun þessarar viku. Gríðarleg vinna hefur verið lögð í leyfiskerfið hér á landi, bæði hjá KSÍ og félögum í Landsbankadeild karla, og hefur Ísland verið í fararbroddi á meðal aðildarþjóða UEFA í innleiðingu kerfisins frá byrjun.

Í skoðuninni tóku þátt Harri Kaartinen frá SGS og Ómar Smárason, leyfisstjóri KSÍ.