Æfingar hjá U17 og U21 karla um helgina
Úrtaksæfingar hjá U17 karla og U21 karla verða laugardaginn 4. nóvember og sunnudaginn 5. nóvember. Lúka Kostic landsliðsþjálfari, er þjálfar bæði þessi lið, hefur valið leikmenn til þessa æfinga.
Vinsamlegast athugið að ekki verða úrtaksæfingar hjá U19 landslið karla þessa helgi.