KSÍ heldur sérnámskeið fyrir E-stigs þjálfara
KSÍ heldur sérnámskeið fyrir E-stigs þjálfara 15.-19. nóvember. Alls hafa rúmlega 40 þjálfarar boðað komu sína á námskeiðið. Á námskeiðið koma tveir heimsþekktir fyrirlesarar Howard Wilkinson frá Englandi og Jens Bangsbo frá Danmörku.
Hér að neðan er dagskráin á námskeiðinu. Þátttakendur eru beðnir um að athuga að dagskráin hefur breyst töluvert frá fyrra uppkasti.
Nánari upplýsingar veitir Sigurður Ragnar Eyjólfsson fræðslustjóri KSÍ (siggi@ksi.is)